- Thor Thors
- Haystack
- Luther College
- Umsóknir

ASF-USA

 

Tenglar

 

Póstur

 


Arion banki er styrktaraðili
Íslensk-ameríska félagsins













 

Luther College

 

Luther College í Decorah, Iowa, heldur á hverju sumri námskeið fyrir norræna kennara um sögu, menningu og hefðir Bandaríkjanna. Umsækjendur um styrk á námskeið hjá Luther College skulu vera íslenskir ríkisborgarar, vera starfandi kennarar og hafa lokið B.Ed gráðu eða sambærilegri gráðu.

Til að sækja um Luther College styrk þarf að leggja inn eftirfarandi gögn.

1. Útfyllta umsókn á ensku.
2. Tvö meðmælabréf á ensku í lokuðu umslagi. Annað bréfið þarf að vera frá náverandi yfirmanni.
3. Mynd.

Frekari upplýsingar um námskeiðið má  finna á heimasíðu Luther College á  http://scandinst.luther.edu/description.htm

Umsóknin er hér, á formi Microsoft Word skjals og sem PDF skjal. Umsækjandi velur það skjal sem hentar betur. Útfyllta umsókn þarf að senda til okkar:

Luther College umsókn (MS Word)
Luher College umsókn (PDF)

Þeir sem að nota Internet Explorer geta hægrismellt á tengilinn og valið "Safe Target As..." PDF skjalið má opna með Acrobat Reader, en hann má nálgast með því að smella á myndina hér fyrir neðan:

Umsóknir og gögn skal merkja og senda, eigi síðar en 15. mars 2010 til:

Íslensk-ameríska félagið
v/Luther College
Pósthólf 320
121 Reykjavík
Ísland