ASF-USA

 

Tenglar

 

Póstur

 


Arion banki er styrktaraðili
Íslensk-ameríska félagsins













 

Starfsþjálfun

 

Einstaklingum sem hafa áhuga á starfsþjálfun í Bandaríkjunum gefst kostur á að sækja um Exchange Visitor (J visa) Program hjá American-Scandinavian Foundation (ASF). ASF aðstoðar við útvegun vegabréfsáritunar (J visa) sem heimilar viðkomandi að stunda tímabundið starfsnám í Bandaríkjunum.

Umsóknarferli:

Eftir að umsækjandi finnur fyrirtæki/stofnun sem vill taka við honum í starfsnám hefur hann samband við skrifstofu ASF í New York á netfang training@amscan.org

Umsækjandi tilgreinir nafn og tengilið fyrirtækisins/stofnunarinnar sem hefur samþykkt að veita starfsþjálfunina. Eftir að ASF kannar hvort fyrirtækið/stofnunin uppfylli tilsett skilyrði hefur ASF samband við tengiliðinn til að kynna ASF og umsóknarferlið. ASF fer einnig fram á að viðkomandi fyrirtæki/stofnun fylli út starfsþjálfunaráætlun (Form DS-7002) fyrir hönd umsækjanda.

Allir umsækjendur þurfa að fara í viðtal. Umsækjendur frá Íslandi fara í viðtal við starfsmann ASF, annað hvort í eigin persónu eða með notkun fjarfundabúnaðar.

Umsóknarferlið tekur yfirleitt um 8 vikur. Umsækjendur eru hvattir til að hefja undirbúning tímanlega. Frekari upplýsingar um prógrammið er að finna á vefsíðu The American-Scandinavian Foundation