ASF-USA

Hlutverk American-Scandinavian Foundation (ASF) er að efla og vinna að auknum samskiptum Bandaríkjanna og Norðurlandanna fimm, Danmerkur, Íslands, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, í mennta- og menningarmálum. ASF var stofnað árið 1910 og er rekið með víðtækum stuðningi ríkisstjórna Norðurlandanna, fyrirtækja og einstaklinga.. Samtökin hafa séð um veitingar styrkja til náms og starfsþjálfunar, útgáfustarfsemi og margvíslegra menningarviðburða. Höfuðstöðvar ASF eru í New York en stuðningsaðilar og meðlimir ASF er að finna um víða veröld?

Stjórn samtakanna er í höndum einstaklinga frá Bandaríkjunum og öllum Norðurlöndunum, sem hafa víðtæk sambönd og starfsleg tengsl í löndunum. Þjóðhöfðingjar Norðurlandanna fimm eru verndarar American Scandinavian Foundation. Að undangenginni fjársöfnun, sem myndarlega var studd af Íslands hálfu, réðst ASF á árið 1998 í byggingu Scandinavia House við 56-58 Park Avenue á miðri Manhattan. Þessi bygging var vígð árið 2000. Hún hefur að geyma samkomusal, sýningaraðstöðu, funda- og móttökusvæði, lestrarstofu helgaða Halldóri Laxness, veitingaaðstöðu m.m., auk skrifstofu American Scandinavian Foundation.

Íslensk-ameríska félagið hefur nána samvinnu við ASF, einkum er varðar styrkveitingar til íslenskra námsmanna í Bandaríkjunum. Frá upphafi hafa yfir 24 þúsund ungir Norðurlandabúar og Bandaríkjamenn notið góðs af fyrirgreiðslu samtakanna við nám, rannsóknir og ýmsa þjálfun.

Tímarit ASF, Scandinavian Review, hefur verið virtur vettvangur skrifa um Norðurlöndin frá því það kom fyrst út árið 1913. Útgáfa ritsins er studd af Norrænu ráðherranefndinni og nær útbreiðsla þess til áhrifaaðila í bandarísku þjóðlífi.